|
Mæli með þessu til afþreyingar ;)
|
24.04.2006 18:55:25 / Suncity
http://solborgyr.blogspot.com
Suncity - endilega tjékkið á nýju síðunni! ég hef nefnilega ekki
mikinn áhuga á að vera í tygjum við sirkusdótið, þar sem ég sé ekki
einu sinni sirkus. Flan!
»
14.04.2006 01:20:24 / Suncity
ég er í páskafríi ... allavega í blogginu. engu öðru!
Suncity - fríbloggari
»
03.04.2006 20:47:16 / Suncity
gosh! til hvers bloggar maður þegar maður hefur alls .ekkert.
til þess að tjá sig um? það vildi ég vita. ég get eflaust fundið
eitthvað til þess að rita hérna niður?
mér tókst að festa bílinn minn og löggan ýtti mér. bíllinn minn
var samt ekkert fastur, hann var alveg að verða laus þegar löggan
kom. þetta var fyndið af því að ég var nýbúin að brjóta lög. ég
keyrði inn á Krókinn þar sem að má ekki keyra inn og fór í
skaflaleiðangur (ef það er orð) og var á vitlausum
vegarhelming.
en langaði ykkur til þess að vita það? puff .. þetta er mitt
blogg og í dag hef ég ákveðið með sjálfri mér að hafa það
innihaldslaust. en það er hvort sem er alltof svoleiðis. ég ætti að
vera að læra í þýsku en í staðinn slæpist ég í computeren, svooo
metnaðarfull. ég fékk afmælisgjöf áðan, fullt af dóti frá Lancome
.takk. fyrir það stelpur mínar!
nú hef ég ritað hér fáein orð sem gætu glött lítil hjörtu. en
sum gleðja þau víst ekki, don´t blame me! og Guðrún, ég er enn að
vinna í þessu rímdóti um þig.
Suncity - hvað rímar við Guðrún?
»
27.03.2006 15:21:58 / Suncity
... og ég nenni engan veginn að blogga, og
vitiði ég má það! af því ég á afmæli. En ég vildi
samt láta þetta hérna fylgja með; mér finnst þetta bara fyndið
sko!
Allir krakkarnir horfðu á örbylgjuofninn nema
Binni...
...hann var þar inni...
Allir krakkarnir horfðu á kirkjuna brenna nema Hermann...
...það var verið að ferm'ann...
Allir strákarnir náðu sér í stelpu nema Tommi...
...hann var hommi...
Allir krakkarnir voru með gel í hárinu nema Hrund...
...hún var með brund...
Allir strákarnir sváfu vel í tjaldinu fyrir utan Skúla...
...hann var notaður sem súla...
Allir strákarnir voru með á körfuboltamyndinni nema Bergur...
...hann var dvergur...
Allir krakkarnir komu uppúr sundlauginni nema Þráinn...
...hann var dáinn...
Allar stelpurnar vorum með brjóst nema Lena...
...hún var með spena...
Allar stelpurnar fóru á klósettið nema Sigga...
...hún lét vaða á bringuna á Bigga...
Allir krakkarnir komu með svala í skólann nema Þór...
...hann kom með bjór...
Allir krakkarnir léku sér saman í körfubolta nema Gvendur...
...hann hafði engar hendur...
Allir krakkarnir skemmtu sér í læknisleiknum nema Vera...
...hún var sú sem var verið að skera...
Allir voru viðstaddir við fæðinguna nema Víðir...
...hann var með hríðir...
Allir krakkarnir fóru uppúr sjónum þegar hákarlinn kom nema Linda
blinda...
...hún var ennþá að synda...
Allir krakkarnir fóru að gráta við jarðarför kennarans nema
Mæja...
...hún fór að hlæja... Allir krakkarnir
eru í góðu skapi nema Björg...
...hún er alltaf svo örg...
Allir krakkarnir voru með hár nema Halla...
...hún var með skalla...
Allir strákarnir áttu kærustur nema Stjáni...
...hann fékk þær í láni...
Allir strákarnir gerðu stelpurnar óléttar nema Sillu...
...hún notaði pillu...
Allir krakkarnir voru hreinir nema Dóra...
...hún var hóra...
Allir krakkarnir voru að syngja nema Fríða...
...hún var að ríða...
Allir krakkarnir voru að leika sér með ostaskerann fyrir utan
Eið...
...hann kom út sneið fyrir sneið...
Allir krakkarnir voru í lúdó nema Ingó...
...hann var í bingó... Allir
krakkarnir fóru að synda nema gamla...
...hún kunni bara að svamla...
Allir krakkarnir höfðu tippi fyrir utan Öllu...
...hún var með Pjöllu...
Allir strákarnir voru að dansa við stelpurnar nema Ágúst....
.....Hann var að dansa við strákúst....
Læt fylgja hérna með mynd frá því fyrir árshátíð
(svona fyrir hana Guðrúnu mína, svo hún sjái kjólinn! .. (er
reyndar líka með ermarnar þarna))

En ég þakka svo allar kveðjurnar sem ég hef
fengið, og ætla mér að hanga og hafa það gott í allan dag. En
Sigurlaug ég óska þér til hamingju með afmælið hér með í dag og
vona að þú kíkjir fljótlega á síðuna mína og sjáir það .. betra er
seint en aldrei!
Suncity - 19 ára í dag!
»
19.03.2006 14:30:12 / Suncity
Já, helgin er á enda .. hún var steikt, ég datt og meiddi mig í
hendinni. Þess vegna er vont að skrifa .. þess vegna verður
þetta ekki langt .. þess vegna get ég ekki borðað með hnífapörum
.. þess vegna er mjög erfitt með að fækka fötum,
sérstaklega peysum!

Ég lifi samt góðu lífi, þrátt fyrir handameiðsl, ég fór í bíó á
Akureyri og sá Aeonflux .. hún komst næstum í hálfkvisti við
steiktu helgina mína, hún var ótrúlega steikt! Á .. þetta var sárt,
sko að skrifa .. hahaha. Ég er að kveðja, semsagt að veifa .. þið
sjáið það bara ekki.
Suncity - handlama! gosh
»
16.03.2006 18:14:03 / Suncity

Allir að kjósa Margréti í netkosningunni! Þar sem hún hefur
púlað og púlað fyrir þessa keppni, á hún skilið að fá atkvæði
okkar frá Króknum .. btw keppnin er annað kvöld í
Sjallanum!
Kjósa hér; http://www.sjallinn.is/un_06/netkostning.htm

Suncity - gó Margrét!
»
06.03.2006 22:09:41 / Suncity
Þar sem ég nenni ekki að læra er
ágætt að skella inn einhverju svona rugli, aldrei að vita nema
þið verðið einhvers vísari um mig!
( ) reykt sígarettu
( ) klesst bíl vinar/vinkonu
( ) stolið bíl
(x) verið ástfangin
(x) verið sagt upp af kærasta/kærustu .. má setja hálfan kross?
( ) verið rekin :Þ
( ) lent í slagsmálum
(x) læðst út meðan þú bjóst ennþá heima hjá foreldrunum.
(x) haft tilfinningar til einhvers sem endurgalt þær ekki
( ) verið handtekin
(  farið á blint stefnumót
(x) logið að vini/vinkonu
(x) skrópað í skólanum
( ) horft á einhvern deyja
( ) farið til Canada
( ) farið til Mexico
(x) ferðast í flugvél
( ) kveikt í þér viljandi
( ) borðað sushi
( ) farið á sjóskíði
(x) farið á skíði
( ) hitt einhvern sem þú kynntist á internetinu
(x) farið á tónleika
(x) tekið verkjalyf
(x) elskar einhvern eða saknar einhvers akkurat núna
(x) legið á bakinu úti og horft á skýin
(x) búið til snjóengil
( ) haldið kaffiboð
(x) flogið flugdreka
(x) byggt sandkastala
(x) hoppað í pollum
(x) farið í "tískuleik"
(x) hoppað í laufblaðahrúgu
(x) rennt þér á sleða
(x) svindlað í leik
(x) verið einmana
(x) sofnað í vinnunni/skólanum
(x) notað falsað skilríki
(x) horft á sólarlagið
(x) fundið jarðskjálfta
( ) sofið undir berum himni
(x) verið kitluð/kitlaður
(x) verið rænd
(x) verið misskilin/n
(x) klappað hreindýri/geit/kengúru
(x) farið yfir á rauðu ljósi/virt stöðvunaskyldu að vettugi
( ) verið rekin/n eða vísað úr skóla
( ) lent í bílslysi
( ) verið með spangir/góm
(x) liðið eins og þú passaðir ekki inn í/þriðja hjól undir
vagni
( ) borðað líter af ís á einu kvöldi
(x) fengið deja vu
(x) dansað í tunglskininu
(x) fundist þú líta vel út.
( ) verið vitni að glæp
(x) efast um að hjartað segði þér rétt til
( ) verið gagntekin af post-it miðum
(x) leikið þér berfættur í drullunni
( ) verið týndur
(x) synt í sjónum
(x) fundist þú vera að deyja
(x) grátið þig í svefn
(x) farið í löggu og bófa leik
(  litað nýlega með vaxlitum
(x) sungið í karaókí
(x) borgað fyrir máltíð eingöngu með smápeningum
(x) gert eitthvað sem þú lofaðir sjálfri/sjálfum þér að gera
ekki
(x) hringt símahrekk
(x) hlegið þannig að gosið frussaðist út um nefið á þér
(x) stungið út tungunni til að ná snjókorni
(x) dansað í rigningunni
(x) skrifað bréf til jólasveinsins
( ) verið kysst/ur undir mistilteini
(x) horft á sólarupprásina með einhverjum sem þér þykir vænt um
(x) blásið sápukúlur
( ) kveikt bál á ströndinni
(x) komið óboðin í partý
( ) verið beðin um að yfirgefa partýið sem þú komst óboðin í
(x) farið á rúlluskauta/línuskauta
(x) hefur einhver óska þinna ræst
( ) farið í fallhlífastökk
(  hefur einhver haldið óvænt boð fyrir þig
Suncity - gerir svona X-dæmi í
letinni
»
02.03.2006 19:11:29 / Suncity
Já, lítið blogg er senn að birtast! ég hef ekkert að segja og
svona blogg sem eru til þess að segja að maður hafi ekkert að segja
eru ekkert rosalega skemmtileg, hehe ... en ég er í óða önn að
skipuleggja einhverjar utanlandsferðir, samt bara þrjár. Ég er
spennt ... víí. Fer suður á morgum með Vildísi og við ætlum að
heimsækja Guðrúnu og tékka á búðunum og svona. Samt er
náttúrulega sparnaður í gangi. En ég bendi einnig á nýja
skoðanakönnun .. endilega takið þátt. Adios ......
Suncity - með útþrá?
»
20.02.2006 10:33:11 / Suncity
Jæja, þá er loksins, samt ekki loksins, búið að bóka ferðina til
Mallorca .. nánar tiltekið á Playa de Palma. Langaði að deila þessu
með ykkur og sýna ykkur nokkrar myndir! bara svo þið getið öfundað
mig aðeins meira ...

Hérna er ströndin okkar!

Og hér er hótelið og þarna getið þið séð að það er Á
ströndinni
Arrgus garrgus ... ég ætlaði að setja inn myndir af
vatnsleikjagarðinum sem er sko 15 mín frá okkur! en ég læt bara
linkinn fylgja og þið getið tjékkað á þessum æðislegu myndum svona
bara ef ykkur langar! og hey, Silvía Nótt vann með
70.000 atkvæðum, bara að bæta því inn ............ http://www.aqualand.es/elarenal/mallorca/index.php
Suncity - getur ekki beðið!
»
16.02.2006 19:38:19 / Suncity
Og það var blogg .. geggjað, samt
bara af því að Guðrún er alltaf að reka á eftir mér og líka af
því að það er vont veður og ég er að bíða eftir Vildísi, erum að
fara að skoða hótel og svona á netinu .. JEI! og ætlaði bara að
láta svona spurningar sem þið eigið að svara, ef þið nennið,
fylgja með og þessa frábæru frábæru sögu sem ég mæli með að
allir lesi þó svo að þeim liggi lífið á!
*Nafn mitt?
*Hvað er miðnafnið mitt?
*Hversu lengi hefurðu þekkt mig?
*Hversu vel þekkiru mig?
*Reyki ég?
*Aldur minn?
*Afmælisdagur?
*Augnlitur?
*Á ég systkyni?
*Hefuru nokkru sinni öfundað
mig?
*Hvað finnst mér skemmtilegast að
gera?
*Hvernig tegund af tónlist hlusta ég oftast
á?
*Hver er minn besti eiginleiki?
*Hvort er ég feimin/nn eða
mannblendin/nn?
*Er ég fyndin/nn?
*Hef ég einhverja sérstaka
hæfileika?
*Er ég gift eða á ég
kærasta?
*Hvað heldurðu að verði um mig
framtíðinni?
*Hver er uppáhalds minning þín um eitthvað
sem við höfum gert saman?
*Heldurðu að við eigum eftir að vera vinir
í framtíðinni?
*Höfum við einhverntíman rifist ef svo er
afhverju?
Dag einn í aldingarðinum Eden heyrðist Eva
kalla til Guðs:
"Drottinn minn, það er smá vandamál!"
"Hvað er að Eva mín?"
"Drottinn minn, ég veit að þú skapaðir mig og hefur útvegað mér
þennan fallega garð og öll þessi yndislegu dýr, og þennan
frábærlega fyndna snák, en ég er bara ekki hamingjusöm".
"Af hverju ertu ekki hamingjusöm Eva?"
"Drottinn minn, ég er einmana. Og ég er orðin hundleið á
eplum".
"Jæja, Eva mín, fyrst svo er þá er ég með lausn á málinu. Ég skal
búa til mann handa þér."
"Hvað er "mann" Drottinn minn?"
"Það er "maður" Eva mín. Hann verður gölluð lífvera, með marga
slæma eiginleika. Hann mun ljúga, svindla, hann verður hégómlegur,
og mun á allan hátt verða þér til vandræða. En.... hann verður
stærri, fljótari og sterkari en þú og honum mun þykja gaman að
veiða og drepa fyrir þig.
Hann mun líta mjög kjánalega út þegar hann er æstur, en fyrst þú
ert að kvarta, þá mun ég skapa hann þannig að hann muni fullnægja
... tja.... já... þínum líkamlegu þörfum. Hann verður húmorslaus og
mun elska að taka þátt í barnalegum hlutum eins og að slást og
sparka bolta til og frá. Hann verður ekki mjög greindur svo hann
mun þurfa leiðsögn þína til að hugsa skýrt."
"Hljómar vel" sagði Eva og lyfti annarri augabrúninni háðslega.
"Hverju þarf ég svo að fórna?"
"Tja, já, jæja, þú getur fengið hann með einu skilyrði".
"Og hvaða skilyrði er það Drottinn?"
"Eins og ég sagði, hann verður stoltur, hrokafullur og
sjálfsánægður.... Svo þú verður að leyfa honum að halda að ég hafi
skapað hann fyrst....Þetta verður leyndarmálið okkar...bara tveggja
kvenna á milli!"
Suncity - btw er ekki búin að festa
gullvagninn! þrátt fyrir kreisí snjó .. kaggi
»
14.02.2006 09:09:54 / Suncity
Leti í blogginu? .. samt eiginlega ekki, ég hef bara eitthvað
ótrúlega lítið að segja þessa dagana. Ég er meira segja hálfveik,
suckar.
Hey, við stelpurnar erum að hugsa um (samt erum eiginlega bara
búnar að ákveða okkur) að fara til útlanda .. eitthvað heitt! veit
einhver um eitthvað rosalegt? haha .. Ég er komin með Silvíu á
heilann, elska líka hringingarnar hennar Vildísar .. svaraðu
skilurru, æji .. svaraðu ókeiei! blah ........ ég er að "læra" í
félagsfræði, er að reyna að finna upplýsingar um klámvæðinguna á
Íslandi .. finn samt engar prósentur um neitt. Hef samt komist að
því að margir segjast kaupa klámblöð bara út af greinunum, þær séu
svo fróðlegar? en ekki út af myndunum. Ég veit ekki alveg hverju ég
trúi, samt einhverjir eru svoleiðis en pottó ekki allir, til hvers
væru þá myndir í klámblöðum af fólki gera hitt og þetta ef enginn
vildi sjá það? Þetta fólk fær reyndar fúlgu af pjéningum fyrir að
sitja fyrir og láta trilljónir af bjánum og "óbjánum" glápa á sig!
Undarlegt, en hvað veit ég?

Bjánakjánabaunafólk .........
Suncity - tóm .. ætti maður að blaða í Hustler? .. hehe ..
»
07.02.2006 17:43:37 / Suncity
Jáhá, fólkið er að missa sig í klukkinu sko! en maður
verður alltaf að vera með í öllu, þetta er hræðilegt .. annars
er ég glaðari en gíraffi (veit samt ekki hvort þeir séu glaðir,
þetta hljómaði bara svooo skemmtilega), semsagt bara glöð glöð
glöð af því að Silvía Night fær að vera með sem er sko tremma
gott!
Annars er bara nóg að gera, skólinn á fullu, verkefni og
próf alls staðar .. alltaf ótrúlega gaman að tala um skólann á
blogginu *kaldhæðni* .. svo það er ekkert nýtt að frétta
..
Hér er annars klukkið;
4 störf sem ég hef
unnið um ævina :
1.
Unglingavinnan
2. Sjúkrahúsið
3. Ábær
4. Landsbankinn
4 bíómyndir sem ég gæti horft á aftur og
aftur:
1.
Clueless 2. Shrek?
3. Lord Of The Rings myndirnar
4. Love Actully
4 staðir sem ég hef búið á :
1. Eskihlíð
2 (eini staðurinn minn!!)
2.
Eskihlíð 2
3.
Eskihlíð 2
4.
Eskihlíð 2
4
sjónvarpsþættir sem mér líkar:
1. Sex and
the city
2.
Cheers
3.
Friends
4.
Family Guy
4 síður sem ég skoða daglega fyrir utan
blogg:
1.
mbl.is
2.
skagafjordur.com
3. b2.is
4. mailið
mitt!
4 staðir sem ég hef heimsótt í
fríum:
1.
Danmörk
2.
Svíþjóð
3.
Spánn
4.
Stefni á USA
4
matarkyns sem ég held uppá : 1. Pasta (mitt
pasta)
2.
Speltpizza
3.
Jólamatur
4.
Ruslfæði!!
4 staðir sem ég vildi heldur vera á
núna:
1.
Í góðu partýi
2.
Á rúntinum
3.
Sofandi
4. Í útlöndum
ég klukka...
Albert,
Vildísi, Guðrúnu Ýr og Túttuna!
Suncity - klukkhelvítið?!!
»
07.02.2006 10:28:49 / Suncity
Helltu sykri yfir mig hunang! sæt er ást okkar jájájá ...
hvernig væri að hætta þessu rugli og senda Silvíu Nótt bestustu
vinkonu okkar bara út skillurru? Allavega ef ÞÚ lesandi góður vilt
senda Silvíu út þá myndi ég rita nafn mitt á þennan lista;
http://www.petitiononline.com/Silvia/petition.html

Suncity - kjóstu Silvíu og syngdu með!
»
31.01.2006 19:28:01 / Suncity
... sem nennið!
1. Hver ert þú?
2. Erum við vinir?
3. Hvenær hittumst við fyrst og hvernig?
4. Ertu hrifin af mér?
5. Langar þer að kyssa mig?
6. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu afhverju þú valdir
það.
7. Lýstu mér í einu orði.
8. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst?
9. Lýst þér ennþá þannig á mig?
10. Hvað minnir þig á mig?
11. Ef þú gætir gefið mér eitthvað hvað myndi það vera?
12. Hversu vel þekkiru mig?
13. Hvenær sástu mig síðast?
14. Hefur þig einhvern tíman langað til að segja mér eitthvað en
ekki getað það?
15. Ætlaru að setja þetta á bloggið þitt svo ég geti skrifað um
þig?
*Annars er allt gott að frétta af mér eins og hinn daginn. Ég
hef lent í ýmsum ævintýrum síðastliðnar vikur. Fauk eitt kvöldið,
slasaði mig og reif buxurnar mínar .. endaði semsagt í drullu! Fór
í fína skautaferð á Akureyri og sannaði snilli mína, fór einmitt
þar á myndina "The Fog" .. bregðumynd en samt svoldið kjánaleg. Svo
hefur djammið nú verið bara ágætt, ekki mikið fyllerí .. Guðrún er
búin að koma aftur, sem var gaman .. og ég er orðin
fyrirmyndarnemandi, held ég .. hehe .. allavega er ég nú farin að
gera eitthvað að því sem stendur í "kompunni" minni. En er farin,
einmitt að læra undir könnun, massinn ég! Tata ...
Suncity - fyrirmyndarnemandi finally?
»
16.01.2006 20:02:13 / Suncity
Ung stúlka 18 ára að aldri hefur hér með verið dæmd til þess að
blogga, stúlkan hefur lofað aðeins meiri afköstum í
bloggmenningunni og sleppur því við sektir. Netlögreglan mun
fylgjast grant með henni á næstu dögum. Snótin sú arna, ótugtin,
henni þykir hún nú undir mikilli pressu og reynir að nýta
sköpunargáfuna!
Hún mun vera að iðka menntun sína enn frekar og mætingin er
alveg með príðindum þetta árið, enda aðeins 1 vika og 2 dagar búnir
af skólanum, heh. Svo hefur letinginn sjálfur tekið þá
ákvörðun að fara að hreyfa á sér rassgatið! keypti mér sko heldur
betur kort í ræktina og hef hva, stundað það síðustu viku ... og
stefni á að gera það eitthvað lengur. Er orðin helvíti leið á að
Árni og Ingvar séu eitthvað argandi á eftir manni; hlaupa, hlaupa
og hlaupa! og svo fyrst að stúlkan er nú að komast í form, einhvern
tímann?, á að minnka sukkið (drykkjuna) aðeins .. heh .. hún var
orðin alveg helvíti mikil og var siðgæðislögreglan farin að sekta
hana fyrir hitt og þetta svo nú verður breyting á! stefni nú
samt á að fá mér aðeins í aðra tánni svona einu
sinni í mánuði, get ekki sleppt því .. batnandi manni er best
að lifa sagði einhver gáfaður víst.
En að öðru gamani, nú eru föstudagskvöldin orðin svona föst
spilakvöld sem er best! langaði bara að deila þessu með
ykkur kjánabjánabaunafólk. Guðrún mín Ýr kemur um helgina, JEI
, þá verður kátt í höllinni ... klippingin rennur brátt upp. Svo nú
getur Elín frænka mín í Svíalandinu verið glöð þar sem ég bloggaði
svo hún fengi fréttir, þó svo að þær séu ekki nokk merkilegar! og
nú skora ég á Guðrúnu Eik, sem skrifaði þessa fallegu sögu í
síðasta blogginu mínu, að gera framhaldssögu á sitt blogg .. þar
sem hún hefur einstaklega góða sögusemjuhæfileika!
Hefur þetta svalað þörf ykkar bloggþyrstafólk? er þetta nóg eða
hvað ... ég hef allavega ekkert meira að segja nema hvernig teiknar
maður Gondóla? ég vildi ótrúlega mikið vita það, eða bara hvað það
er.
Suncity - Gondólabloggari, hver veit?
»
Síður: 1 2 3 ... 7
|
|